Óli Ólafs, þjálfari

Í dag er ég bara alveg eins og þú, upptekinn pabbi að reyna að finna jafnvægi á milli fjölskyldu, vinnu, áhugamálum og heilsu.

En ég fékk snemma brennandi áhuga á líkamsrækt og hef safnað að mér reynslu á mörgum sviðum síðustu 18 ár.

Í upphafi þegar maður var ungur og vitlaus snerist allt um að líta vel út, vera massaður með sixpack og vera sterkari en félagarnir.
Með árunum og 2 börnum hafa áherslur breyst til hins betra og í dag fókusum við á stóru hlutina í lífinu.
- Líða vel í skrokknum
- Hafa tíma og orku fyrir börnin
- Leggja grunninn að góðri elli

Með árunum hef ég lært að það hafa ekki allir áhuga né þörf á að æfa eins og skepna alla daga vikunnar og troða í sig þurrum kjúkling og brokkolí 6x á dag og Pabba planið er hannað útfrá þessum 18 árum af reynslu.

Image

Ég hóf ferilinn sem þjálfari 19 ára gamall á Nordica Spa.
Í upphafi var það vinna í kringum námið mitt í margmiðlun en fljótlega tók ástríðan fyrir þjálfun yfir.

Árið 2009 færði ég mig yfir í Sporthúsið Kópavogi þar sem ég fékk frjálsar hendur með að setja saman hin ýmsu námskeið og hóptíma. Þar má helst nefna vinsælu Tabata tímana og TRX/Ketilbjöllu námskeiðin sem fólk saknar enn í dag.
Auk þess kenndi ég herþjálfun, stöðvaþjálfun, cage fitness ofl.

Seinna stefndum við á ævintýri í Kaupmannahöfn þar sem ég þjálfaði bæði Crossfit í Crossfit CPH og TRX tíma í TRX CPH.
Öll þessi ár hef ég líka verið með einka og fjarþjálfun.

Í dag sinni ég nokkrum hlutverkum í þjálfun.
Ég sé um Gullið í Sporthúsinu, lítil lúxus stöð innan Sporthússins þar sem þjálfari fylgir aðildinni.
Ég sé um styrktarþjálfun fyrir M.fl Hauka í körfubolta.
Ég tek að mér einstaka einkaþjálfun en mesta áherslan er á Pabba planið.

Image