Pabba planið
Verð: 18.900kr
Pabba planið er 8 vikna fjarþjálfun þar sem aðal áherslan er að þú setur fókusinn á nokkrar heilbrigðar venjur án þess að það valdi þér auka streitu.
Saman setjum við upp rútínu sem virkar fyrir þig og ég hanna svo æfingaplan í samræmi við það og þín markmið.
Pabba planið snýst ekki einungis um æfingaplanið sjálft heldur samvinnu okkar í að þú fylgir því plani sem við setjum upp.
Skráning
Eftir skráningu og greiðslu færðu aðgang að appinu og grunn æfingaplani svo þú getur byrjað strax á morgunSpurningalisti
Þú svarar nokkrum spurningum frá mér sem hjálpar mér að setja upp þína rútínu og þitt planEftirfylgni
Ég heyri í þér reglulega yfir tímabilið og við förum yfir stöðuna saman. Hér skiptir mestu máli að þú sért duglegur að heyra í mér til baka. Þeir sem ná mestum árangri eru þeir sem ég heyri mest í.Skráðu þig í næsta hóp og fáðu undirbúningsplan svo þú getur byrjar strax á morgun
Skráning
Spurt og svarað
Þarf ég að eiga börn til að vera með?
Pabba planið er opið hverjum sem er. Þó þjálfunin miðist við upptekna pabba þá gildir fræðslan og planið fyrir nánast hvern sem er.Get ég æft hvar sem er?
Já. Eftir að þú hefur svarað spurningalistanum þá set ég upp áætlun og æfingaplan sem hentar þér og þínum aðstæðum. Ef það þýðir heima-æfingar eða æfingar með takmarkaðan búnað þá græjum við þaðÉg vil bæta heilsuna en ég nenni ekki einhverju átaki eða kúr.
Pabba planið byggist einmitt upp á því að koma inn heilbrigðum venjum í samræmi við þínar aðstæður og þín markmið. Fyrir marga pabba gæti það þýtt einungis 1-2 æfingar í viku. Fókusinn er heilbrigður lífsstíll til lengri tíma. Ekki skyndikúr eða brjálað átak sem endist stuttFæ ég matarplan eða næringarráðgjöf?
Þú færð grunn kennslu í næringu og ráðgjöf hvernig er best að borða fyrir helstu markmið en ég set ekki upp matarplön. Í staðinn kenni ég nokkrar "nutrition principles" eða reglur sem þú notar við val á mat hvern dag. Þannig getur þú hagað dögunum eftir því hvaða áskorun lífið (aka. börnin) henda í þig hvern dag.Ég er að kljást við meiðsli. Er hægt að vinna í kringum það?
Ég er vel að mér kominn og með mikla reynslu að þjálfa fólk í kringum meiðsli.Eftir að þú hefur svarað spurningalistanum set ég upp æfingaplan sem hentar þér og þínum aðstæðum.
Með góðum samskiptum okkar á milli getum við svo lagað æfingaplanið eftir þörfum.